Færsluflokkur: Dægurmál

28. apríl 2009 Afmælisbörn dagsins

Heiðdís Harpa mín er 8 ára í dag. Það er sko búið að vera mikið fjör hjá henni í dag. Í dag bauð hún vinkonum sínum og það er ekkert smá sem þær geta skemmt sér saman. Munaði litlu að þakið fyki af hérna á tímabili Wizard en þetta eru orðnar svo stórar stelpur og allt fór vel.

Þegar ég hugsa til baka finnst mér svo margt hafa breytst á þessum 8 árum........

Önnur afmælisbörn dagsins sem ég veit um eru tvíburafrændsyskin mín Guðmann og Sigrún Elísa (21) og svo auðvitað Jay Leno (59), Penelope Cruz (35) og Jessica Alba (28).

Til hamingju öll með daginn. Kissing


Ég er hér ennþá.......

...........hef bara ekki verið í neinu bloggstuði og er meira bara að skoða facebook en það er aldrei að vita hvað gerist síðar, hef allavega verið í löngu bloggfríi.  En sé til hvað verður.


Gleðileg jól.....

.....Og farsælt komandi ár.    Vona að allir eigi gleðilega tíma framundan.

Jólahreindýr


Ég er hér enn.....

þó ég hafi ekki bloggað neitt lengi.   Ég fór á Abba  Arrival showið  á laugardaginn í Vodafonehöllinni og það var bara mjög gott og flott hjá þeim.  Þetta band er búið að starfa lengur en Abba var starfandi. .   Ef þið hafið áhuga þá er hér linkur á síðuna þeirra: http://www.arrival.se/#Scene_1  

 

 


Sýki og síki ekki það sama

Seinast þegar ég vissi var síki skrifað síki en ef um sjúkdóm er að ræða þá skrifað sýki.

það er kannski breytt eins og margt annað.  Í þessari frétt er skrifað sýki og það þrisvar.


mbl.is Nakinn á sundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lítið bloggstuð og smá Færeyska

Ég hef bara ekki verið í neinu bloggstuði undanfarna daga, seinustu viku var ég nánast ekkert heima því það var kynningartörn hjá mér í stórri viku. 

Þessa dagana er maður að upplífa svo margt skrýtið sem manni hefði aldrei dottið í hug. Hvað verður næst? Krónan á hraðri niðurleið, bankar stefna í gjaldþrot og verðbólga og vitleysa. Allt hækkar og hækkar. Fuss og svei.  Vona að þetta fari að lagast.

Hér eru svo Færeyskar flenufréttir sem  hægt  er að glotta  út í annað út af:

 Eins gott að klæða sig vel svo að maður lendi ekki undir dýnunni...

Verri influensu hevur ikki gingið í Føroyum í nógv ár, og hjánógvum,

serliga eldri fólki, og fólki, sum annars eru veik, kann hon blívahon so

ring, at tey fóta sær ikki aftur.

Influensan er so umfatandi, at tað eru bara tey hepnastu, sumsleppa undan,

serliga um tú ikki hevur havt influensu í eini tvey, trý ár.

Og hon herjar við fullari styrki, og skal takast í fullum álvara Og so eru

tað eini góð ráð eisini at hava panodil, ella kodimagnyl viðhondina til at

taka broddin av fepurinum og pínuni í liðunum.

Í Italia eru tvær milliónir farin undir dýnuna og í Fraklandiliggur ein

millión undir dýnunni. img_5895

 

 


Styttist í viku 39...........

og sú vika telst mjög mikilvæg í annarri vinnunni minni.........

..........veit einhver af hverju? ...............eða viltu vita meira?


Ætlaði að kíkja

en mér var boðið í afmæli sem ég valdi framyfir Ljósanótt.  Það var mikið stuð eiginlega of mikið því ég asnaðist til að fara í karaoke Mamma mia Blush með henni Láru sem er alveg stórfín.  En þetta var skemmtilegt.  Takk fyrir mig Sverrir. Smile

 

 


mbl.is Mikill mannfjöldi á Ljósanótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn einn klukkleikurinn í gangi. Þórður Helgi klukkaði mig.

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina

  • Bókari
  • Skrifstofusjóri
  • Gjaldkeri
  • Sölumaður/ Hópstjóri  (fyrir utan afgr.gróðurhús, barnapössun, veitingahús)

 

Fjórar bíómyndir sem ég held upp á  (Erfitt að velja 4)
  • Mamma Mia

  • Rocky Horror Picture Show

  • Love Actually
  • As good as is gets

Fjórir staðir sem ég hef búið á

  • Reykjavík

  • Rödovre (Kaupmannahöfn)

  • Álaborg

  • Neskaupsstað ( 1 sumar þegar ég var 2 ára)

  •  

  • Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar

  • Forbrydelsen

  • Desperat Housevifes

  • My Family

  • Me and my girl

  •  

  • Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum

    • Spánn
    • Italía
    • Danmörk
    • Tenerife

  Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg

  • mbl.is
  • valur.is
  • tupperware.dk
  • ja.is

Fernt sem ég held uppá matarkyns

  • Nautasteik
  • Kjúlli
  • Indverskur
  • Mexican


  Fjórar bækur sem ég hef lesið oft

  • Les yfirleitt ekki bækur oftar en einu sinni nema námsbækur
  • og bækur sem ég hef lesið fyrir dætur mínar.,

Fjórir bloggarar sem ég klukka  

  • Snorri Magnússon
  • Freydís Bjarnadóttir
  • Katrín Snæhólm
  • Jóna Á. Gísladóttir

 

 


Góðir farþegar, verið velkomin heim.

Ég er komin heim frá Álaborg og ég var að hugsa í gærkvöldi hvað það er alltaf notalegt að heyra þessi orð  þegar maður er lentur, þó að maður hafi bara verið nokkra daga í burtu.  Ég hef nú bara heyrt þetta hjá Icelandair minnir mig.  Ætli þetta sé svona í öðrum löndum?

En á miðvikudagskvöld hófst ferðalagið. Við fórum 5 manna hópur sölumanna og hópstjóra frá Íslandi, allt konur að þessu sinni (dreifingaraðilarnir tveir voru farnar á undan).   Við fórum með næturflugi til Köben, komum þangað 06 og þá tók við lestarferðalag til Álaborgar sem tók fimm og hálfan tíma.  Við sváfum nú mislítið, ég held að ég hafi náð kannski einum og hálfum tíma alls í svefni þá nótt.  Fimmtudaginn höfðum við alveg fyrir okkur.

Þegar við vorum búnar að koma okkur fyrir á Quality hotel Aalborg þá fórum við allar sjö saman í Aalborg Storcenter, það þurfti auðvitað að versla aðeins.   Um kvöldið fórum við svo í miðbæinn og enduðum á að borða á stað sem heitir Den stygge Krympen, þar voru alveg risaskammtar af mat.

Föstudagsmorgun byrjuðum við með morgunverðarhlaðborði sem var mjög gott og girnilegt. M.a. með ekta dansk liverpostej heitri  og alls kyns gúmmilaði.  Síðan fór ég ein í leiðangur að skoða húsið sem ég bjó í þegar ég var fimm ára.  Pabbi var í tæknifræðinámi þarna og ég hafði bara ekki komið síðan við fluttum þaðan.  Grönlandstorv 5, ég rölti um og tók nokkrar myndir sem ég set inn seinna.  Ég hitti svo Áslaugu, Nönnu og Laueyju í HM niðrí bæ hvar annars staðar? Wink

Síðan drifum við okkur upp á hótel í ráðstefnugallann,  við frá Íslandi allar í eins bolum og eins á litinn buxum, rétt náðum hádegismatnum áður en þetta byrjaði.

Það var alveg rosalega heitt í salnum enda voru þarna 1300 manns frá öllum Norðurlöndum og Eystrasaltslöndunum, fjöldi þeirra sem er að selja Tupperware í þessum löndum er 14.700,- þannig að þetta náði ekki 10% sem þarna voru. Til þess að komast á svona ráðstefnu er alltaf sett ákveðin söluskilyrði.   Eins og venjulega var mikið um heiðranir og nýjungar kynntar og forstjóri TW Nordic og annað starfsfólk tók mikinn þátt í alls kyns skemmtiatriðum og það var til dæmis mjög flott þegar allur salurinn var fenginn til að syngja samtaka.   Síðan eru alltaf kynntar nýjungar, nýr bæklingur kynntur og við fáum alltaf eitthvað af nýju Tupperware gefins.

Um hálfátta var svo galadinner og hljómsveit. Ég komst ekki í galafordrykk að þessu sinni, og engin frá Íslandi, aldrei að vita hvort ég verði með í febrúar þegar árleg hópstjóraráðstefna verður haldin.

Við Freydís fórum allavega síðast, og við Áslaug þarsíðast. Það sem er skemmtilegt líka við það er að safna Silfurstaupunum merktu (segir maður annars staup um svona há glös) jæja allavega.  Þetta var mjög  skemmtilegt kvöld og við enduðum kvöldið með smá partýi uppá herbergi.

Laugardagsmorgun vaknað kl. 8 eftir fimm tíma svefn, uhumm, við Áslaug vorum nú frekar þreyttar, svo þegar við komum niður í morgunmat var bara mjög margt búið af hlaðborðinu!!!! og við áttum að mæta klukkan 9 í Aalborghallen en það er stóri salurinn í ráðstefnuhúsinu.  Um kvöldið var síðan Fun night, en það er árlegt grímuball á þessari ráðstefnu og þemað í ár var Fly with me.   Við vorum þyrlur. Aðrir hópar voru t.d. fiðrildi, nornir, blómálfar, randaflugur, kalkúnar, leðurblökur og m.a.s. fljúgandi kýr.Grin

Sunnudagurinn fór svo í ferðalagið til baka, lest kl 13:10 frá Álaborg, flug 22:30 frá Kastrup og var svo lent eitthvað fyrir miðnætti að íslenskum tíma.

 

quality_hotel_200Hér fyrir neðan er smá myndbrot frá Jubilee en ég sést ekki, sit svo ofarlega.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband