12.8.2008 | 19:01
Ég er alltaf á hlaupum, brot af því sem ég hef gert í dag.
Ekki hef ég nú verið dugleg að blogga núna en tíminn er bara alltaf horfinn frá mér. Ég er bara búin að vera á fullu í allan dag eins og flesta daga. Fyrst í vinnuna og þar lítur maður varla uppúr verkefnum nema rétt til að fjarstýra heimilinu og það er sko ekki vanþörf á því með 7 ára orkubolta sem unglingurinn ræður varla við. Síðan náði ég í gjaldeyri, fór í klippingu og skol svo ég verði nú fín á galakvöldinu á föstudaginn, ( er sko að fara á Tupperware Jubilee). Síðan náði ég að fara með bílinn í smurningu og ég er rosalega fegin að vera búin að því. Mér finnst svo pirrandi þegar ég er búin að ætla að gera eitthvað í marga daga og gleymi því eða kemst ekki í það. Þessu verkefni allavega lokið í bili.
Sest aðeins niður á meðan kjullinn er í ofninum og svo er spurning hvort ég fari aðeins í vinnuna aftur í kvöld. Þyrfti að klára ákveðin mál áður en ég fer til Álaborgar.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.