2.9.2008 | 18:19
Ég á afmæli í dag, ég á afmæli í dag
Ein sjálfhverf, en ef ekki á afmælisdaginn hvenær má maður þá vera sjálfhverfur.
Ég fór með kökur í vinnuna í morgun og þær vöktu mikla hrifningu, sérstaklega sælgætis ostakakan mín, og sú franskar klikkar nú ekki heldur.
Í hádeginu bauð Anna vinkona mér út að borða á Vox nammi namm. Frábært hlaðborð þar.
Það er búið að vera svo bilað að gera hjá mér að ég bakaði þessar kökur til dæmis í nótt. Jæja best að fara að laga aðeins til og kannski henda í eina heimsins bestu súkkulaðiköku ef einhver skyldi reka inn nefið.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Til hamingju með daginn!
Helga Guðrún Eiríksdóttir, 2.9.2008 kl. 22:38
Takk fyrir . Kvöldið var mjög fínt líka.
Sigríður Þórarinsdóttir, 3.9.2008 kl. 00:16
Klukk
Þórður Helgi Þórðarson, 7.9.2008 kl. 14:10
og já... til hamingju með daginn
Þórður Helgi Þórðarson, 7.9.2008 kl. 14:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.