Fairytale of New York

Hér eru The Pogues og Kirsty MacColl. Kirsty lést því miður rétt fyrir jól árið 2000 í hræðilegu slysi þegar hún var að kafa við strendur Mexico. Hún rétt náði að bjarga syni sínum en varð sjálf fyrir hraðbátnum sem kom á fullri ferð á svæði sem var eingöngu fyrir kafara.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jens Guð

  Frábært lag með dásamlegri hljómsveit.  Til gamans má geta að pabbi Kirstyar,  skoska söngvaskáldið Ewan McColl,  kynnti blúsinn fyrir Bretum (og þar með Evrópu).  Hann heillaðist svo af blúsnum að hann hratt úr vör vikulegum blúsþætti í breska útvarpinu,  stofnaði blúshljómsveit og opnaði blús-skemmtistað. 

  Áður en langt um leið einbeitti Ewan sér alfarið að því blús-fyrirbæri sem kallast skiffle (var vinsælt í Bandaríkjunum í upphafi síðustu aldar en var að mestu horfið).  Hann þyrlaði upp skiffle-æði í Bretlandi.  Frægasti breski skiffle-söngvarinn var Lonnie Donegan.  Hljómsveit Johns Lennons, Querrymen, var skiffle-hljómsveit áður en hún breyttist í Bítlana.

  Mörg laga Ewans eru heimsfræg,  svo sem  Dirty Old Town  (í flutningi The Pouges,  Rod Stewart o.fl.) og  First Time Ever I Saw Your Face  (í flutningi Robertu Flack,  Elvis Presley,  George Michael o.fl.). 

  Síðarnefnda lagið samdi hann um bandaríska konu sína, Peggy Seeger.  Bróðir Peggyar,  Pete Seeger, er líka frægur lagahöfundur.  Frægustu lög hans eru  Where Have All the Flowers Gone  (með Kingston Trio.  Á íslensku með Ragga Bjarna,  Elly Vilhjálms, Savanna Tríói og Mosa frænda) og  Turn, Turn, Turn  (með The Byrds),  We Shall Overcome  (með Joan Baez).  Í fyrrs sendi Bruce Springsteen frá sér heila plötu með lögum Petes Seegers,  The Seeger Sessions.

  Kirsty reyndi að gera út á lagasmíðar eins og pabbi sinn.  Tracey Ullman sló í gegn með lagi eftir hana,  They Don´t Know.  Það er kaldhæðnislegt að lagasmiðurinn Kirsty er þekktust fyrir flutning á lagi eftir Billy Bragg,  A New England

  Billi Bragg gerir einnig út á lagasmíðar.  Það er kaldhæðnislegt að eina lagið sem hann sjálfur hefur komið í 1. sæti breska vinsældalistans er eftir Bítlana,  She´s Leaving Home.

  Svo skemmtilega vill til að Billy Bragg og Pete Seeger hafa sungið saman lag eftir þann síðarnefnda inn á plötu.  Ég man ekki hvað það heitir.  En svona fléttast poppheimurinn saman,  jafnvel á milli landa.

Jens Guð, 5.12.2008 kl. 01:35

2 Smámynd: Sigríður Þórarinsdóttir

Takk fyrir þessa skemmtilegu fróðleiksmola, ég heyrði einmitt fyrst í Kirsty McColl þegar hún söng A New England sem var í miklu uppáhaldi hjá mér 1986.  Ég vissi ekki að Kirsty hefði samið They don't know, á það á vinyl með Tracey Ullman.

Sigríður Þórarinsdóttir, 6.12.2008 kl. 01:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband