28. apríl 2009 Afmælisbörn dagsins

Heiðdís Harpa mín er 8 ára í dag. Það er sko búið að vera mikið fjör hjá henni í dag. Í dag bauð hún vinkonum sínum og það er ekkert smá sem þær geta skemmt sér saman. Munaði litlu að þakið fyki af hérna á tímabili Wizard en þetta eru orðnar svo stórar stelpur og allt fór vel.

Þegar ég hugsa til baka finnst mér svo margt hafa breytst á þessum 8 árum........

Önnur afmælisbörn dagsins sem ég veit um eru tvíburafrændsyskin mín Guðmann og Sigrún Elísa (21) og svo auðvitað Jay Leno (59), Penelope Cruz (35) og Jessica Alba (28).

Til hamingju öll með daginn. Kissing


Sheena Easton á 50 ára afmæli í dag

Hér er eitt gamalt og gott kemur reyndar með dönskum texta hehe.

Tónlistarafmælisbarn dagsins

Tim Curry er 63 ára í dag, þar sem ég er mikið Rocky Horror fan ætla ég að skella hér inn smá tónlist úr myndinni með honum.

 


Loretta Lynn á afmæli í dag

Loretta Lynn er 74 ára í dag. Ég hlustaði mikið á plötuna Coal Miners Daughter eftir að myndin var sýnd. Gaman að rifja upp þessi lög en hér er hún með systrum sínum og dóttur held ég.


David Cassidy

Ég sá að David Cassidy varð 59 ára á páskadag. Ég var alveg hryllilega skotin í honum þegar ég var 8-9 ára að horfa á Söngelsku Fjölskylduna, man einhver eftir þessum þáttum? Ég var með plaggöt út um allt herbergi af honum og Susan Dey og svo auðvitað poppurum og rokkurum sem voru vinsæl. Ég var á þessum tíma farin að biðja um Bravo og Pops blöð í staðinn fyrir Andrés Önd svona endrum og eins.  En David kallinn hefur nú látið á sjá eins og við er að búast.

 

 


Ég er hér ennþá.......

...........hef bara ekki verið í neinu bloggstuði og er meira bara að skoða facebook en það er aldrei að vita hvað gerist síðar, hef allavega verið í löngu bloggfríi.  En sé til hvað verður.


Gleðileg jól.....

.....Og farsælt komandi ár.    Vona að allir eigi gleðilega tíma framundan.

Jólahreindýr


A New England Kirsty MacColl

Hér kemur eitt gamalt uppáhaldslag.

 

 


Fairytale of New York

Hér eru The Pogues og Kirsty MacColl. Kirsty lést því miður rétt fyrir jól árið 2000 í hræðilegu slysi þegar hún var að kafa við strendur Mexico. Hún rétt náði að bjarga syni sínum en varð sjálf fyrir hraðbátnum sem kom á fullri ferð á svæði sem var eingöngu fyrir kafara.


Billy Idol Til hamingju með afmælið

Billy Idol er 53 ára í dag. Hér tekur hann nett jólalag, Jingle Bell Rock.

Hér er smá fróðleikur um hann:

Billy Idol (born William Michael Albert Broad, 30 November 1955, Stanmore, Middlesex) is an English rock musician.

He first achieved fame in the punk rock era as a member of the band Generation X. He then embarked on a successful solo career, aided by a series of stylish music videos, making him one of the first MTV stars. Idol continues to tour with guitarist Steve Stevens and has a fan base all around the world.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband