15.7.2008 | 20:45
Bilanafaraldur?
Ég hélt alltaf að mikið eftirlit væri með Tívolí tækjum allavega á Norðurlöndunum en ég var að lesa að 150 manns slasist árlega í tækjum í skemmtigörðum í Danmörku það er svakalegt. En þetta slys í Svíþjóð er þriðja slysið á örfáum dögum sem ég frétti af. Eftir slys í Faarup Sommerland liggur 8 ára drengur lfshættulega slasaður.
Ég held ég hugsi mig tvisvar um næst áður en ég stekk upp í eitthvað brjálað tívolí tæki.
Sjá líka: http://jp.dk/indland/article1385229.ece
http://ing.dk/artikel/89699?bund
![]() |
Leiktækið var skoðað í vor |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.7.2008 | 00:33
Linda Rondstadt
Linda Rondstadt er 62 ára í dag. Man einhver eftir henni? Þetta lag finnst mér alltaf fallegt en ég hef ekki heyrt það lengi. Þetta var sturtulagið mitt á tímabili á unglingsárunum.
Tónlist | Breytt 20.7.2008 kl. 17:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.7.2008 | 00:04
Dirty Dancing
Ég dreif mig í Dirty Dancing tíma í World class í dag/kvöld og er bara ánægð með að hafa drifið mig af stað, sporin flott og skemmtileg og í kvöld var blanda af salsa og jazz sporum. Mér finnst samt alltaf pínu mál að koma ný inn í svona tíma sem eru búnir að vera í nokkrar vikur. Það er svo mikil keyrsla á þessu ég þarf að hafa mig alla við að muna hvað kemur næst nógu hratt. Hef sennilega ekki litið út eins dancing queen allan tímann.. Dans er samt skemmtilegasta líkamsræktin þannig að ég ætla að reyna að halda áfram í þessu og taka svo kannski nokkra tækjatíma með inná milli.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)