28. júlí Afmælisdagur Bjössa

Einn uppáhaldsfrændi  minn Björn Árdal Jónsson hefði orðið 56 ára í dag hefði hann lifað. Hann  féll frá allt of snemma eða aðeins 31 árs vegna blæðingar inn á heila. 

Bjössi var næstyngsti bróðir pabba míns og kom mikið í heimsókn eftir að hann flutti suður og fór í Myndlista og Handíðaskólann og að vinna hér fyrir sunnan.  Ég hef sennilega verið um 10 ára þegar hann flutti suður og hann var alltaf að grínast og fíflast eitthvað í okkur systkinunum.  Minningar um kex og kökur sem mamma dró fram með kvöldkaffinu,  Bjössi að hjálpa mér að teikna.... plötusafnið hans sem ég hlustaði mikið á..... og ótalmargt fleira.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hann Bjössi var frábær frændi og blessuð sé minning hans.  Alltaf hress og kátur og fíflaðist í okkur krökkunum. Mér er mjög minnisstætt alltaf þegar Gunnar var að hrekkja mig þá hélt Bjössi með mér og þóttist ætla að sturta Gunnari niður í klósettið og hélt honum á hvolfi fyrir ofan klósettið og ég stóð til hliðar tilbúin að sturta niður þegar hann myndi sleppa  - híhí.

Úlla (IP-tala skráð) 31.7.2008 kl. 10:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband